ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Fallegt einbýlishús sem stendur á tæplega tveggja hektara lóð í búgarðabyggð í landi Byggðarhorns í Árborg.
Eignin er byggð úr timbri, alls 147,8m2 að stærð ásamt sérbyggðum bílskúr sem er 32,5m2. Að utan er húsið klætt með litaðri smábáru og ómeðhöndluðu lerki í bland. Þak er einhalla að hluta, klætt með járni en hluti þess er klæddur með dúk. Gluggar og hurðir eru ál/tré.
Að innan skiptist eignin í forstofu, þvottahús, 2 baðherbergi, 3 svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, stofu og eldhús. Vönduð innrétting með góðum tækjum er í
eldhúsi og er harðparket á gólfi. Harðparket er á borðstofu og stofu, í stofu er rennihurð útá sólpall.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, þar er rennihurð útá sólpall og góðir fataskápar. Innaf hjónaherbergi er flísalagt baðherbergi bæði gólf og veggir en þar er gólfsturta með innbyggðum tækjum og snyrtileg innrétting.
Þvottahúsið er með harðparketi á gólfi en þar eru góðir skápar og hurð út.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og tveir veggir, þar er stór gólfsturta með innbyggðum tækjum og góð innrétting.
Herbergisgangur er parketlagður og þar er rennihurð út á sólpall.
Herbergin eru parketlögð og eru skápar í þeim báðum.
Sjónvarpsherbergi er rúmgott og er parket á gólfi. Góð lofthæð er í húsinu og eru öll loft klædd með hljóðdúk.
Bílskúr er klæddur og málaður, gólf er flísalagt, geymsluloft er yfir hluta hans.
Stór sólpallur með skjólveggjum, heitum og köldum pottum er við húsið, um 9m2
gufubaðshús er við pallinn og stórt
útieldhús er á pallinum. Að auki er búið að reisa um 25 m2
gestahús við húsið og er það að fullbúið en ekki inn í heildarstærð eignarinnar.
Búið er að þökuleggja stóran blett og gróðursetja um 300 stór tré í lóðina.
Í heildina er um að ræða einstaklega bjart og vel skipulagt einbýli á stórri lóð.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.