ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna; Mjög snyrtilegt og fullbúið iðnaðarbil á góðum stað í Hellismýri á Selfossi. Eignin er að grunnfleti 84 m2 að auki er komið upp milliloft sem er 25,6 m2. Bilið er endabil með góðum gluggum á gafli og góð lofthæð er í húsinu og er það mjög bjart. Salerni er á neðri hæðinni en hæðin er annars stór salur. Gólf eru lökkuð með slitþolnu lakki. Á efri hæð er búið að útbúa kaffistofu og opið rými framan við hana. Geymsluloft 10 m2 er ofan á kaffistofunni og er það ekki skráð í fermetratölunni. Gólfhiti er á jarðhæðinni. Raflagnir eru fullbúnar og góð lýsing er komin upp í eigninni. Rafmagnsopnari er á hurð. Lóð er malbikuð.
Bjart og mjög snyrtilegt iðnaðarhúsnæði á góðum stað.
Kaupandi þarf að yfirtaka áhvílandi VSK kvöð.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.