ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Snyrtilegt og vel skipulagt parhús í eftirsóttu hverfi skammt frá Sunnulækjarskóla á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með lituðu járni, bárujárn er á þaki.
Heildarstærð eignarinnar er 148,9m2 og er sambyggður bílskúr 39,3 m2 þar af.
Að innan skiptist eignin í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús auk bílskúrs.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Þvottahús er með flísum á gólfi og rúmgóðri innréttingu.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, þar er góð innrétting, gólfsturta og baðkar.
Svefnherbergin eru 3, parket er á gólfum og í hjónaherbergi er stór fataskápur.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, parket er á gólfi. Í eldhúsi er rúmgóð innrétting með eyju.
Bílskúr er 39,3 m2 með máluðu gólfi. Í enda skúrsins er geymsla sem hægt væri að nýta sem
fjórða herbergið, þar er parket á gólfi.
Sólpallur með skjólveggjum og
heitum potti er við húsið.
Mulningur er í innkeyrslu, lóðin er þökulögð.
Mjög gott og snyrtilegt hús á góðum stað innst í götu.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
[email protected] eða í síma 482-4800.