ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:-LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING-Snyrtileg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í snyrtilegu fjölbýli í nýlegu hverfi á Selfossi.
Íbúðin er alls 60,9m2 að stærð og er geymsla í sameign 2,4m2 þar af.
Að innan skiptist íbúðin í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi/þvottahús og stofu/eldhús í opnu rými.
Flísar eru á gólfi í forstofu og á baðherbergi, baðherbergið er rúmgóð og þar er flísalögð gólfsturta, góð innrétting og önnur innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergið er parketlagt og þar er góður fataskápur.
Stofa og eldhús eru í opnu rými, parket er á gólfi, góð innrétting er í eldhúsi og í stofu er útgengt á hellulagða verönd.
Lóðin er þökulögð og bílaplan er malbikað.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
[email protected]