Hrafnhólar 15, Selfoss

  • Tegund:
    Parhús
  • Stærð:
    173
  • Fasteignamat:
    26.100.000
  • Brunabótamat:
    45.300.000
  • Áhvílandi:
    20.902.092
  • Herbergi:
    0
  • Svefnherbergi:
    0
  • Baðherbergi:
    1
  • Stofur:
    0
  • Þvottahús:
  • Bílskúr:
    1

Verð: 28.000.000 kr

Hrafnhólar 15, Selfoss

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna;
Fallegt og vel staðsett parhús í Suðurbyggðinni á Selfossi. Eignin skiptist í 138 m2  íbúð og bílskúr er 40,3 m2, alls 178,3 m2. Húsið er timburhús, klætt með múrsteini að utan í rauðum lit. Þak hússins er klætt lituðu stáli. Að innan skiptist eignin í forstofu, þvottahús, hol, 3 herbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúr. Flísar eru á gólfum í öllum rýmum nema á herbergjum þar er plastparket. Baðherbergi er rúmgott, með góðri innréttingu og hurð út á pall með heitum potti. Bráðabirgðainnrétting er í eldhúsi. Þiljur eru í öllum loftum. Bílskúr er klæddur en ómálaður. Bílaplan er steypt og góður pallur með skjólveggjum og heitum potti er við baklóð hússins.Húsið er frábærlega staðsett, stendur innst í botnlanga og er staðsett í göngufæri við nýjan barnaskóla í Suðurbyggð.
Fallegt og mjög vel staðsett hús.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.




Mynd Mynd Mynd Mynd