ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna: Snyrtilegt verslunarhúsnæði í nýlegu húsi miðsvæðis í Hveragerði. Húsnæðið er alls 62,0 m2 að stærð, er á jarðhæð og er mjög bjart með stóra útstillingarglugga. Að innan er eigninni skipt í stóran parketlagðan sal, kaffistofu með lítilli innréttingu og flísalagt salerni. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning. Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.


